
Fyrirhugaðar breytingar á orlofsmálum félagsins
Kæri félagsmaður,
Unnið er að sameiningu orlofspakka fjögurra stéttarfélaga. Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélag Fjallabyggðar, Starfsmannafélag Dala og Snæfellssýslu og Starfsmannafélag Vestmannaeyja.
Um er að ræða tilraun í eitt ár með að sameina orlofspakka til að geta boðið félagsmönnum meira úrval á orlofshúsum, íbúðum á höfuðborgarsvæðinu auk þess að það verður meira úrval á niðurgreiddri hótelgistingu.
Tekið verður upp rafrænt skráningarkerfi þannig að félagsmenn geti bókað gistingu rafrænt og geti séð hvaða tímabil eru laus .
Fyrirhugað er að gefa út sameiginlegan orlofsbækling í apríl með nánari upplýsingum og leiðbeiningum á kerfið.